Brekkuás 2

Verksvið

Alhliða hönnun

Ár

2023

Staðsetning

Garðabær

Stærð m2

587,6 m²

Staða

Klárað

Við Brekkuás 2 í Ásahverfi í Garðabæ er sjö íbúða búsetukjarni fyrir fatlað fólk, ásamt starfsmannaaðstöðu. Búsetukjarninn er hugsaður sem heimilislegt og aðgengilegt búsetuúrræði þar sem áhersla er lögð á gott skipulag, skýra rýmisgreiningu og aukin þægindi í daglegu lífi íbúa.

Byggingin er á einni hæð, staðsteypt og einangruð að utan, klædd með timburklæðningu. Heildarstærð hennar er 587,6 m².


Bygging búsetukjarnans er hluti af stefnu Garðabæjar um áframhaldandi uppbyggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk, samhliða fjölgun annarra búsetuúrræða og fækkun herbergjasambýla, með það að markmiði að styrkja sjálfstæða búsetu og bæta lífsgæði íbúa.